Bein útsending frá UTmessunni
Í dag fer fram ráðstefnudagur hinnar árlegu UTmessu í Hörpu. Á UTmessunni koma saman helstu tæknifyrirtæki landsins til að deila nýjungum, hvetja fólk til að kynnast iðnaðinum og sýna hvað tæknin getur gert fyrir daglegt líf og rekstur fyrirtækja. Þetta er í 16. skipti sem UTmessan er haldin.
Líkt og á síðasta ári taka Ský og Advania á Íslandi höndum saman og halda úti beinni hlaðvarpsútsendingu frá Hörpu þar sem rætt verður við nokkra af stærstu fyrirlesurum ráðstefnunnar. Advania LIVE útsendingunni stýrir að þessu sinni Arnar Ágústsson deildarstjóri hjá Rekstrarlausnum Advania en hann hefur nokkrum sinnum sjálfur verið fyrirlesari á UTmessunni í Hörpu.
Hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilaranum frá klukkan 10 í dag. Á meðal gesta í hlaðvarpinu verða Jen Easterly og Paul Zikopolous en þau eru aðalfyrirlesarar UTmessunnar 2026.
Dagskrá
10:00 Jen Easterly, CEO, RSAC
10:20 Paul Zikopoulos, Vice President, IBM Skills Vitality and Enablement, IBM
10:40 Guðmundur Arnar Sigmundsson, Netöryggis- og gagnaþróunarstjóri, Advania
11:00 Thelma Christel Kristjánsdóttir, Lögmaður / CRO, Jónsbók
11:20 Eiður Eiðsson, Framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni, Hagar
11:40 Sigurjón Ólafssson, Ráðgjafi, Fúnksjón
12:00 Sigurrós Soffía Kristinsdóttir, Hugbúnaðarssérfræðingur, Asana
12:20 Hafsteinn Einarsson, Dósent í tölvunarfræði, Háskóli Íslands
12:40 Vala Hjörleifsdóttir, Dósent í verkfræði, Háskólinn í Reykjavík
Um UTmessu
UTmessan er viðburður fyrir öll sem elska tækni eða langar að kynna sér töfra tækninnar! Þar má skoða og prófa það nýjasta sem er gerast í tölvu- og tækniheiminum. Á ráðstefnudeginum 6. febrúar er boðið upp á fróðlega fyrirlestra og sýningar fyrir skráða gesti, en á tæknideginum 7. febrúar er opið hús þar sem öll eru velkomin að gera sér glaðan dag með líflegum sýningum og fjölbreyttum kynningum. Á UTmessunni er eitthvað spennandi fyrir okkur öll!
Um Advania LIVE
Advania heldur úti hlaðvarpi með lifandi umræðum við sérfræðinga í beinni útsendingu við ýmis tilefni. Fjallað er um margar hliðar upplýsingatækni út frá sjálfbærni, gervigreind, öryggismálum og öllu því sem er í forgrunni hverju sinni.
Nú þegar hafa verið beinar útsendingar á vegum Advania LIVE frá ýmsum viðburðum eins og Nýsköpunarviku, Mannauðsdeginum og Ferðaþjónustuvikunni. Hægt er að sjá öll viðtöl úr þessum útsendingum á hér á vef Advania og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.