UTmessan 2012
9. febrúar á Grand hótel
3 ráðstefnulínur |
35 fyrirlestrar |
35 sýnendur |
Pallborð |
UT-verðlaunin |
Gamlar tölvur |
Örfyrirlestrar
Um 400 ráðstefnugestir og um 1.000 manns mættu til að skoða tölvugeirann þrátt fyrir mjög slæmt veður.
Sýning | Expo
9. febrúar 2012 kl. 8:30 - 21:00
Opið fyrir almenning á sýningu á tölvugeiranum
Örkynningar - UT-verðlaunin - Allt það nýjasta og skemmtilegasta í tækniheiminum.
UTmessan var í þetta sinn haldin á Grand hóteli sem eins dags viðburður. Ráðstefna og sýning fyrri part dags en opnað var fyrir almenning seinnipart dags.
Þar sameinast í einum viðburði öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki Íslands og sýna fagfólki í UT og öðrum landsmönnum hve flottur UT geirinn á Íslandi er. Að UTmessunni stóðu Skýrslutæknifélagið (Ský) í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Microsoft Íslandi og Samtök iðnaðarins (SUT, IGI, SSP).