HEILDARDAGSKRÁ UTMESSUNNAR 2016
UTmessan 2016 felur í sér marga viðburði og allir styðja þeir við markmið UTmessunnar sem er að sýna hve stór og fjölbreyttur tölvugeirinn á Íslandi er með það að markmiði að fjölga þeim sem velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarfsvettvang. Öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins taka þátt í viðburðum UTmessunnar.
Föstudagurinn 5. febrúar kl. 8:00-18:30
- ráðstefnudagur fyrir tölvu- og tæknifólk
Skrá þarf fyrirfram á ráðstefnuhluta UTmessunnar og kostar inn á þann hluta.
DAGSKRÁ RÁÐSTEFNUNNAR - ÝTTU HÉR
Ráðstefna fyrir fagfólk og aðra áhugamenn um upplýsingatækni. Á ráðstefnunni verða nokkrar þemalínur í sölum Hörpunnar. Mikill metnaður er hjá undirbúningsnefndinni og munu margir færir erlendir og innlendir fyrirlesarar stíga á stokk á ráðstefninni. Fjöldi fyrirtækja hefur skráð sig á sýningarsvæðið í opnu rými á fyrstu hæð Hörpunnar og verður það opið ráðstefnugestum allan daginn.
Laugardagurinn 6. febrúar kl. 10-17
- ókeypis upplifun fyrir alla fjölskylduna og aðra sem vilja sjá hvað er að gerast í tölvugeiranum
DAGSKRÁ LAUGARDAGSINS - ÝTTU HÉR
Sýning tölvu- og tæknifyrirtækja verður opin allan daginn og kostar ekkert inn. Örkynningar og fræðsla í gangi í sölum í Hörpunni um ýmislegt sem tengist daglegu lífi og upplýsingatækni. Einnig verða alls kyns getraunir og leikir í gangi og hægt að fá aðstoð tæknimanna við ýmis vandamál sem tengjast upplýsingatækni. Margt fleira skemmtilegt verður í boði til að svipta af hulunni af dulúð tölvuheimsins, bæði fyrir börn og fullorðna. Sýningin er ætluð almenningi, konum og körlum, stelpum og strákum, ungum sem öldnum.