Skip to main content

HEILDARDAGSKRÁ UTMESSUNNAR 2019

UTmessan felur í sér marga viðburði og allir styðja þeir við markmið UTmessunnar sem er að sýna hve stór og fjölbreyttur tölvugeirinn á Íslandi er með það að markmiði að fjölga þeim sem velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarfsvettvang. Öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins taka þátt í viðburðum UTmessunnar.  Þannig hefst UTmessan á UTmessu vikunni, síðan er ráðstefnudagur UTmessunnar og að lokum sýningardagur UTmessunnar.

UTMESSU VIKAN 2. -11. FEBRÚAR - ÚTUM ALLAN BÆ (OFF-VENUE) 

- Opið hús hjá skólum og fyrirtækjum tengdum UTmessunni. Fróðleikur fyrir almenning og frítt inn en athugið að það þarf að skrá sig fyrirfram á suma viðburðina.

DAGSKRÁ UTMESSU VIKUNNAR - er hér

Tæknifyrirtækin opna uppá gátt vikuna fyrir UTmessu og bjóða í heimsókn til að sýna hvað þau hafa uppá að bjóða.  Mjög fjölbreytt dagskrá fyrir mismunandi aldurshópa.
 

FÖSTUDAGURINN 8. FEBRÚAR KL. 8:00-18:30

- ráðstefnudagur fyrir tölvu- og tæknifólk. Upplýsingatækniverðlaun Ský verða veitt í lok dags.

DAGSKRÁ RÁÐSTEFNUNNAR - er hér

Ráðstefna fyrir fagfólk og aðra áhugamenn um upplýsingatækni. Á ráðstefnunni verða nokkrar þemalínur í sölum Hörpunnar.  Mikill metnaður er hjá undirbúningsnefndinni og munu margir færir erlendir og innlendir fyrirlesarar stíga á stokk á ráðstefninni. Fjöldi fyrirtækja hefur skráð sig á sýningarsvæðið í opnu rými á fyrstu hæð Hörpunnar og verður það opið ráðstefnugestum allan daginn.
 

LAUGARDAGURINN 9. FEBRÚAR KL. 10-17

- ókeypis upplifun fyrir alla fjölskylduna og aðra sem vilja sjá hvað er að gerast í tölvugeiranum 

DAGSKRÁ LAUGARDAGSINS  - er hér

Sýning tölvu- og tæknifyrirtækja verður opin allan daginn og kostar ekkert inn. Einnig verða alls kyns getraunir og leikir í gangi. Margt fleira skemmtilegt verður í boði til að svipta af hulunni af dulúð tölvuheimsins, bæði fyrir börn og fullorðna. Sýningin er ætluð almenningi, konum og körlum, stelpum og strákum, ungum sem öldnum.