Nú reddum við þessu!
Gagnvirk netöryggisæfing þar sem verður farið í gegnum ólíkar tegundir netárása og afleiðingar þeirra í gagnvirkri æfingu þar sem allir áhorfendur í salnum geta tekið þátt í viðbragðinu. Sviðsmyndirnar munu líkja eftir raunverulegum aðstæðum íslenskra fyrirtækja og stofnanna. Aðstæðurnar munu stigmagnast eftir því sem líður á æfinguna og munu Guðmundur og Runólfur taka lifandi umræður um áhrif og hlutverk ólíkra rekstraraðila í einka- og opinbera geiranum ásamt viðbragðsaðilum sem samhæfa aðgerðir í meiriháttar netárásum

Runólfur Þórhallsson er yfirlögregluþjónn almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og hefur sinnt þeirri stöðu frá nóvember 2024. Runólfur hefur starfað sem lögreglumaður í 37 ár og m.a. í sérsveit og leitt greiningardeildina.