Skip to main content

Heildardagskrá UTmessunnar 2015

UTmessan 2015 felur í sér marga viðburði og allir styðja þeir við markmið UTmessunnar sem er að sýna hve stór og fjölbreyttur tölvugeirinn á Íslandi er með það að markmiði að fjölga þeim sem velja sér tölvu- og tæknigreinar sem framtíðarstarfsvettvang. Öll helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins taka þátt í viðburðum UTmessunnar. 

Föstudagurinn 6. febrúar 
- fyrir tölvu- og tæknifólk

Frá kl. 8:30-18:30

Ráðstefna fyrir fagfólk og aðra áhugamenn um upplýsingatækniÁ ráðstefnunni verða nokkrar þemalínur í sölum Hörpunnar.  Mikill metnaður er hjá undirbúningsnefndinni og munu margir færir erlendir og innlendir fyrirlesarar stíga á stokk á ráðstefninni. Fjöldi fyrirtækja hefur skráð sig á sýningarsvæðið í opnu rými á fyrstu hæð Hörpunnar og verður það opið ráðstefnugestum allan daginn.

DAGSKRÁ RÁÐSTEFNUNNAR  - ÝTTU HÉR

Laugardagurinn 7. febrúar 
- ókeypis upplifun fyrir alla fjölskylduna og aðra sem vilja sjá hvað er að gerast í tölvugeiranum

Opið frá kl. 10-17

Sýning tölvu- og tæknifyrirtækja verður opin allan daginn og kostar ekkert inn. Örkynningar og fræðsla í gangi í sölum í Hörpunni um ýmislegt sem tengist daglegu lífi og upplýsingatækni. Einnig verða alls kyns getraunir og leikir í gangi og hægt að fá aðstoð tæknimanna við ýmis vandamál sem tengjast upplýsingatækni. Margt fleira skemmtilegt verður í boði til að svipta af hulunni af dulúð tölvuheimsins, bæði fyrir börn og fullorðna. Sýningin er ætluð almenningi, konum og körlum, stelpum og strákum, ungum sem öldnum.

Dagskrá laugardagsins - ýttu hér