Skip to main content

Almennar upplýsingar um samstarfs- og sýningaraðild
- ATH. ALLT SÝNINGARPLÁSS 2016 ER UPPsELT -

Harpa er gífurlega vel til þess fallin að halda stórar ráðstefnur og sýningar og verðum við með nokkra sali undir ráðstefnuna ásamt rúmu sýningarsvæðinu dreift um allt húsnæðið. Leitast verður við að hafa umgjörð UTmessunnar fagmannlega og UT geiranum til fyrirmyndar.

HÉR ER TEIKNING AF UPPRÖÐUN Á SÝNINGARSVÆÐINU 
(uppröðun og staðsetning getur breyst þar sem þetta eru fyrstu drög)

Leiðbeiningaskjal
(Praktísk atriði til sýnenda)

Munið að skrá á ráðstefnuna alla sem mæta frá fyrirtækinu og ætla að hlusta á fyrirlestranna í gegnum þetta skráningarform
(líka þá sem ætla að nýta sér miðanna sem eru innifaldir í sýningaraðildinni - við drögum svo frá reikningnum þann fjölda miða sem er innifalinn)
Starfsmenn sem einungis vinna í básum þurfa ekki að skrá sig á ráðstefnuna - þeir mega ekki fara á fyrirlestranna.

PÖNTUNARFORM frá sýningarkerfum
(fyrir þá sem ætla að panta aukahluti hjá þeim)

UTmessan 2016 samanstendur af: 

  • Föstudaginn 5. febrúar: Sýningu og ráðstefnu fyrir UT geirann allan daginn, fjölmargar þemalínur. Endað í kokteil til að efla tengslanetið.
  • Laugardaginn 6. febrúar: Ókeypis örkynningum fyrir almenning og áframhaldandi sýningu með áherslu á að höfða til barna og fullorðna utan UT geirans.

Við leitum til þín með þátttöku í UTmessunni, bæði á sýningarsvæðinu og á annan hátt til að gera UTmessuna enn flottari og áhugaverðari fyrir almenning s.s. með leikjum eða öðru sem laðar fólk að.

Samstarfsaðilar Ský um UTmessuna eru Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Samtök iðnaðarins. Einnig er fyrirtækjum boðið samstarf í formi Platinum, Gull, Silfur eða Brons aðildar og er sprotafyrirtækjum og félagasamtökum boðið sérstakt pláss á sýningarsvæðinu. Nánari upplýsingar um hvað hver tegund aðildar innifelur er að finna hér neðar.

Óskað er sérstaklega eftir því að í sýningarbásum verði eitthvað áhugavert fyrir almenning á laugardeginum og skuldbinda sýningaraðilar sig til að vera með fulla viðveru á föstudeginum og laugardeginum á meðan á UTmessunni stendur. 

Af hverju að gerast samstarfsaðili?

Frábært tækifæri til að kynna þitt fyrirtæki, vörur og þjónustu fyrir stjórnendum, tæknimönnum og áhrifafólki í upplýsingatæknibransanum, nemum í tölvunarfræði og almenningi. Það á við um öll fyrirtæki sem eru beint eða óbeint háð upplýsingatækni og óháð markaðssvæði því tilgangurinn er að sýna UT geirann á Íslandi.

Þinn ávinningur:

  • Miðar á ráðstefnu UTmessunnar
  • Sterkari tenging við aðstandendur UTmessunnar og möguleiki á að hafa áhrif á dagskrá ráðstefnunnar
  • Tækifæri til að hitta vini og kunningja og efla tengslanetið
  • Góð kynning á þínu fyrirtæki og hugmyndafræði
  • Taka þátt í viðburði sem hefur það markmið að sýna Íslendingum hve mikil framþróun er í UT geiranum
  • Tækifæri til að hafa áhrif á að ungt fólk velji sér UT sem framtíðarstarf - jafnvel þitt fyrirtæki sem framtíðarvinnustað!

Platinum samstarfsaðili -450.000 kr. - hámark 4 aðilar (UPPSELT)

Það sem þú færð:

  • 6 miða á ráðstefnu UTmessunnar
  • 16 fm sýningarpláss á besta stað í sýningarsal UTmessunnar í Hörpu
  • nafn og lógo fyrirtækis merkt sem Platinum samstarfsaðili:
  • Í fréttabréfi/auglýsingu sem verður sent út amk. 2 sinnum á póstlista Ský
  • í dagskrárbæklingi ráðstefnunnar
  • á skjánum í upphafi ráðstefnu og öllum hléum
  • tengil á heimasíðu þíns fyrirtækis UTmessan.is

Það sem UTmessan vill frá Platinum aðilum:

  • Innlegg í dagskrá ráðstefnunnar með afgerandi hætti t.d. í formi erlends fyrirlesara um heit málefni í UT
  • Áberandi atriði sem laðar almenning að á sýningarsvæðið á laugardeginum
  • Útsendingar á póstlista þíns fyrirtækis s.s. viðskiptavina um UTmessunar
  • Einn fulltrúa til samstarfs við undirbúningsnefnd ráðstefnunnar
  • Þátttaka í kostnaði við almennar auglýsingar um UTmessuna

Gull samstarfsaðili - 250.000 kr. - hámark 10 aðilar (UPPSELT)

Það sem þú færð:

  • 4 miðar á ráðstefnu UTmessunnar
  • 10 fm sýningarpláss í sýningarsal UTmessunnar í Hörpu
  • tengil á þitt fyrirtæki á vef UTmessunnar

Silfur samstarfsaðili - 100.000 kr. (UPPSELT)

Það sem þú færð:

  • 2 miðar á ráðstefnu UTmessunnar
  • 6 fm sýningarpláss í sýningarsal UTmessunnar í Hörpu 
  • tengil á þitt fyrirtæki á vef UTmessunnar 

Brons samstarfsaðili - 75.000 kr. (UPPSELT)

Það sem þú færð: 

  • 1 miða á ráðstefnu UTmessunnar
  • 6 fm sýningarpláss í sýningarsal UTmessunnar í Hörpu á 2. hæð fyrir framan Silfurberg
  • tengil á þitt fyrirtæki á vef UTmessunnar

Sproti / félagasamtök - 30.000 kr. (uPPSELT)

Það sem þú færð:

  • 1 frímiða á ráðstefnu UTmessunnar
  • 2 fm á sprotasvæði í Hörpu á 2. hæð
  • tengil á þitt fyrirtæki á vef UTmessunnar

tæknstiginn - (UPPSELT)

Tæknistiginn er útfærður í ár af Samtökum iðnaðarins

ÞAÐ SEM ÞÚ FÆRÐ:

  • pláss í hólfi í stiganum uppað Kolabraut
  • tengil á þitt fyrirtæki á vef UTmessunnar

-----------

Ef þú hefur áhuga á að vera samstarfsaðili skaltu senda upplýsingar um eftirfarandi á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. sem fyrst þar sem takmarkaður fjöldi kemst að:

  • Nafn fyrirtækis/stofnunar/sýnanda
  • Tengiliður, nafn og símanúmer
  • Tegund samstarfsaðildar (Platinum, Gull, Silfur, Brons, Sproti)
  • Lýsing á sýningarplássi s.s. bogaveggur, eigin sýningarkerfi eða annað (nægir að senda upplýsingar þegar nær dregur)
  • Hugmynd að því hvernig sýningarbás muni laða að almenning á laugardeginum